Orðagull Cheats

Orðagull Hack 3.0.1 + Redeem Codes

Developer: Rosamosi ehf.
Category: Education
Price: Free
Version: 3.0.1
ID: Is.Rosamosi.Ordagull

Screenshots

Game screenshot Orðagull mod apkGame screenshot Orðagull apkGame screenshot Orðagull hack

Description

Smáforritið Orðagull miðar að því að styrkja orðaforða, vinnsluminni, heyrnræna úrvinnslu og máltjáningu nemenda. Allt eru þetta mikilvægir undirstöðuþættir máls og læsis. Gengið er út frá því að smáforritið henti elstu börnum í leikskóla og börnum á yngsta stigi grunnskóla. Einnig getur það nýst eldri nemendum, sem og nemendum sem eru að læra íslensku sem annað tungumál.

Höfundar eru Bjartey Sigurðardóttir, talmeinafræðingur og læsisráðgjafi hjá Menntamálastofnun, og Ásthildur Bj. Snorradóttir, talmeinafræðingur hjá Skrifstofu fræðslu og frístundasviðs Hafnarfjarðar. Teikningar eru unnar af Búa Kristjánssyni og Margrét Júlíana Sigurðardóttir sá um upplestur. Tölvuleikjafyrirtækið Rosamosi vann alla hugbúnaðarvinnu. Smáforritið er enn sem komið er eingöngu til á íslensku.
Leitast er við að virkja áhuga nemenda með því að gera námsefnið skemmtilegt og áhugavert. Þannig eru nýtt þau tækifæri sem felast í smáforritum til að viðhalda áhuga nemenda og styrkja þá grunnþætti náms sem nefndir voru hér að framan. Þrátt fyrir að forritið sé í grunninn hugsað sem málörvunarefni er einnig mögulegt að nota það til lestrarþjálfunar og sem skemmtilega afþreyingu.
Í gegnum skráningarkerfi forritsins er foreldrum og kennurum gert kleift að meta árangur og fylgjast með framförum. Einnig er mögulegt að nemendur geti sjálfir fylgst með eigin framförum. Í byrjun verður hægt að nálgast forritið án endurgjalds hjá App Store.

Möguleikar sem forritið býður upp á:

Að hlusta á og fara eftir heyrnrænum fyrirmælum
Muna og endurtaka fyrirmæli
Já og nei spurningar
Orðaforði
Orðalestur
Lesskilningur
Hlustunarskilningur

Version history

3.0.1
2020-12-05
Minniháttar lagfæringar og betrumbætingar.
3.0
2020-11-16
Uppfærsla þessi inniheldur fjórtán ný verkefni í hverjum verkefnaflokki sem meðal annars innihalda:
100+ ný fyrirmæli, 100+ nýjar spurningar, 100+ ný orð í orðabók
ásamt ýmsum lagfæringum og betrumbætingum.
2.03
2018-10-31
Ýmsar lagfæringar og betrumbætingar hafa verið gerðar á smáforritinu.
2.02
2018-01-25
Ýmsar bætur hafa verið unnar á smáforritinu.
Smáforritið hefur einnig verið þjappað á mun betri máta og tekur því minna pláss.
2.01
2018-01-12
Orðagull er nú einnig fáanlegt á farsíma.
Appið hefur nú fengið verulega yfirhalningu og er því allur framgangur notanda endursettur.
Nú er hægt að eyða notendum inni í appinu.
Appið er mun minna í stærð.
Allar æfingar eru opnar frá upphafi.
Margar minni lagfæringar og ýmsar bætur hafa verið unnar á appinu.
2.0
2018-01-11
Orðagull er nú einnig fáanlegt á farsíma.
Appið hefur nú fengið verulega yfirhalningu og er því allur framgangur notanda endursettur.
Nú er hægt að eyða notendum inni í appinu.
Appið er mun minna í stærð.
Allar æfingar eru opnar frá upphafi.
Margar minni lagfæringar og ýmsar bætur hafa verið unnar á appinu.
1.12
2017-06-20
Minni háttar lagfæringar sem auka stöðugleika appsins.
1.11
2017-02-03
Í uppfærslu forritsins er tekið aukið tillit til fjölmenningar þannig að öll börn geti samsamað sig við ákveðnar persónur sem koma fram í forritinu. Sem dæmi má nefna að þegar nemendur velja sér persónu í byrjun geta þeir valið sér ákveðinn húðlit og kynþátt.
1.01
2016-11-21
Litlar lagfæringar sem bæta keyrslu smáforritsins. (Minor bug fixes and stability improvements).
1.0
2016-11-15

Ways to hack Orðagull

Download hacked APK

Download Orðagull MOD APK
Request a Hack

Ratings

4.7 out of 5
3 Ratings

Reviews

Leo_Magg,
Fínast leikur
Skemmtilegur leikur fyrir börn til að dunda í